Þú getur stillt tímasvæði með því að velja staðsetningu vélarinnar eða sem frávik frá UTC.
Taktu eftir dálkunum tveim efst á skjánum. Sá fyrsti býður þér upp á að stilla eftir staðsetningu. Með þessum valmöguleika er hægt að velja sýn. Með því að velja Skoða eru valmöguleikarnir: Heimur, Norður Ameríka, Suður Ameríka, Mið Ameríka, Evrópa, Afríka og Asía.
Út frá gagnvirka kortinu er hægt að velja ákveðna borg eins og tilgreint er með gulum punktum, rautt X mun birtast við val.
Einnig er hægt að skruna í gegnum lista með borgum til að velja tímasvæði.
Annar dálkurinn býður upp á að nota frávik frá UTC. Þar finnur þú lista yfir frávik til að velja úr.
Með báðum þessum dálkum er hægt að velja Klukkan í vélinni er á UTC. (UTC, einnig kallað GMT, gerir tölvunni kleift að meðhöndla klukkuskipti rétt.) Vinsamlegast veldu þetta ef vélbúnaðarklukkan er stillt á UTC (í stað þess að vera stillt á staðartíma).