Sláðu inn lykilorð fyrir ofurpaurinn. Lykilorðið verður að vera að minnsta kosti 6 stafir að lengd. Staðfestu lykilorðið með því að slá það inn að nýju í reit númer tvö. Áfram hnappurinn mun verða virkur þegar báðir reitirnir stemma.
Síðan skaltu búa til aðgang fyrir venjulegan notanda.
Sláðu inn notandanafn. Þvínæst skaltu búa til lykilorð fyrir notandann og staðfesta það. Að lokum geturðu slegið inn fullt nafn notanda og staðfest með Enter. Upplýsingunum um notandann mun þá verða bætt við aðgangslistann.
Til þess að bæta öðrum notanda við skaltu velja Nýr og slá inn upplýsingum í tómu reitina. Þegar innslætti hefur verið lokið skaltu velja Bæta við hnappinn til þess að bæta notandanum við aðgangslistann.
Þú getur einnig valið að Breyta aðgangi sem búinn hefur verið til. Með því að velja Eyða er aðgangi eytt.